þriðjudagur, 9. janúar 2018




Óskar Jakob Sigurðsson, Eyjamaður ársins 2012 að mati Eyjafrétta:

Enginn fróðari um veður og veðurfar í Eyjum

:: - Heimsmeistari í fuglamerkingum og Hetja umhverfisins - Myndband fylgir fréttinni

Óskar Jakob Sigurðsson, sem líklega er betur þekktur sem „Óskar í Höfðanum“, fæddist í Stórhöfða 19. nóvember 1937. Sonur hjón­anna Bjargar Sveinsdóttur og Sigurðar Jónatans­sonar, veður­­-
athug­­ana­­­manns og vita­varðar þar. Jónatan, afi Óskars, var einnig vita­vörður í Stórhöfða og tók við því starfi árið 1910. Vitavarar­starfið í Stórhöfða hefur því gengið í erfiðir í beinan karllegg í rúma öld og fjórir ættliðir hafa gegnt því. Óskar tók við starfinu árið 1965, lét af því árið 2008 og þá tók einmitt fjórði ættliðurinn við keflinu, Pálmi, sonur Óskars.
Óhætt mun að fullyrða að enginn er fróðari um veður og veðurfar í Vestmannaeyjum á liðinni öld og upphaf nýrrar aldar en Óskar í Höfðanum. Sannkallaður viskubrunnur á því sviði og höfum við á Eyjafréttum oftlega leitað þangað eftir upplýsingum sem ljúflega hafa verið látnar í té.
Og þá er komið að höfuðáhugamáli Óskars í gegnum tíðina, fugla­merkingunum, en þær hófust árið 1953. Óskar hefur verið óþreytandi í því starfi. Hann hefur alls merkt 40 tegundir fugla og fjöldinn er kominn upp í 91 þúsund. Þar af eru lundarnir flestir en alls hefur Óskar merkt um 54 þúsund lunda, unga og aldna, á þeim 60 árum sem hann hefur stundað fuglamerkingar. Og hér eigum við Eyjamenn heimsmethafa, því að eng­inn einn maður í veröldinni hefur merkt fleiri fugla en Óskar. Það var staðfest árið 1997 í Heimsmetaskrá Guinnes þar sem nafn Óskars var skráð.
Það er ekki aðeins á sviði fuglanna sem Óskar hefur látið að sér kveða í sambandi við náttúrulíf og umhverfi. Árið 2007 var hann heiðraður sem „Hetja umhverfisins“ af sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi fyrir störf við kolefnismælingar og loftmælingar sem hann innti af hendi fyrir banda­ríska rannsóknastofnun, NOOA, og stendur fyrir Nationa Oceanic and Atmospheric Administration. Þær mælingar Óskars hafa staðið yfir í um 20 ár sleitulaust og standa enn.
Óskar fagnaði 75 ára afmæli sínu í nóvember síðastliðnum, með hógværð og lítillæti eins og hans hefur ævinlega verið háttur. Hann afþakkaði gjafir en tók við frjálsum framlögum veislu­gesta og afhenti síðan Krabbameinsfélagi Íslands það fé.
Enginn Eyjamaður hefur lagt meira af mörkum á lífsleiðinni til náttúrulífs og umhverfismála en Óskar Jakob Sigurðsson, Óskar í Höfðanum. Hann er því einkar vel að þessari viðurkenn­ingu kominn.