Fýll sem var merktur 17. október 1970 endurheimtur!
01. mars 2011 kl.15:22
Merktur
fýll kom í fiskinet við Eyjólfsklöpp suðvestur af Heimaey 18. febrúar
síðast liðinn og leit merkið út fyrir að vera nokkuð gamalt. Haft var
samband við Óskar Sigurðsson í Stórhöfða en hann hefur merkt ófáa fýla í
gegnum tíðina.
Fýll á flugi við Ofanleitishamar á Heimaey.
Í ljós kom að Óskar hafði merkt þennan fýl
fullorðinn í Stórhöfða 17. október 1970. Því var fýllinn að minnsta
kosti 41. árs! Aldrei hefur liðið eins langur tími frá merkingu að
endurheimt á þeim fuglum sem Óskar hefur merkt, fyrra met var 36 ár. Frá
Náttúrufræðistofnun Íslands fengust þær upplýsingar að elsti merkti
fýllinn hafi náðst lifandi 43 ára og 11 mánaða gamall í Bretlandi svo
þetta er ekki met. Merkinu verður nú komið til Náttúrufræðistofnunar
Íslands en þar er haldið utan um fuglamerkingar á Íslandi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli